30.11.2013
Könnun meðal nemenda um afstöðu til náms við ríkisháskóla landsins.
Ríkisháskólar landsins hafa tekið sig saman og senda nú frá sér sameiginlega könnun til að kanna afstöðu nemenda til námsins við skólana. Könnunin var send á HA netföng viðkomandi nemenda.
Við hvetjum þig til að taka 5-10 mínútna hlé á próflestri og svara könnuninni þar sem það er mjög mikilvægt fyrir HA að svörunin sé góð til að samanburður við hina skólana sé sem marktækastur.
26.11.2013
Nú er prófaundirbúningur kominn á fullt enda prófin handan við hornið. FSHA hefur samið við skólayfirvöld um að fá að nýta tvær nýjar stofur eingöngu fyrir hópa nemenda sem vilja vinna saman verkefni eða undirbúa sig saman sem hópur undir próf. Stofurnar sem um ræðir eru K105 og K106, innstu stofurnar á K gangi, neðri hæð. Stofurnar eru búnar borðum og stólum.
13.11.2013
Nemendum HA býðst tilboð á tvenna frábæra tónleika sem verða í Hofi á næstunni. Annarsvegar eru tónleikar Bloodgroup fimmtudaginn 14. nóvember og hinsvegar útgáfutónleikar Lay Low laugardaginn 16. nóvember. Kynnið ykkur tilboðin hér.
06.11.2013
iCalendar stuðningur er í fjölda forrita meðal annars í Google Calendar, Apple Calendar og Microsoft Outlook.
04.11.2013
Stofnfundur Landssamtaka íslenskra stúdenta fór fram 2. og 3. nóvember 2013 á Akureyri. Stofnaðilar samtakanna eru Félag stúdenta við Háskólann á Akureyri, Nemendafélag Háskólans á Bifröst, Nemendafélag Landbúnaðarháskóla Íslands, Nemendaráð Listaháskóla Íslands, Samband íslenskra námsmanna erlendis, Stúdentafélag Háskólans í Reykjavík, Stúdentafélag Hólaskóla og Stúdentaráð Háskóla Íslands. Allir íslenskir stúdentar, hátt í 25.000 talsins, eiga því fulltrúa í LÍS sem er sjálfstætt félag og er stjórnað af íslenskum stúdentum.