28.02.2020
Ákall til stjórnvalda vegna fjárveitinga til Háskólans á Akureyri – stefnuleysi og ábyrgðarleysi þegar kemur að menntun einstaklinga utan höfuðborgarsvæðisins - ályktun á aðalfundi SHA
25.02.2020
Klukkan 13:15 þann 25. febrúar lokaði kjörstjórn fyrir framboð í störf Stúdentafélags Háskólans á Akureyri, nefndir og ráð HA. Hér að neðan má sjá lista yfir þau framboð sem hafa borist. Neðst í fréttinni má sjá lista yfir þau embætti sem ekki buðust framboð í og verður opnað fyrir framboð í þau embætti á aðalfundi félagsins þann 28. febrúar klukkan 13:15. Auk þess smá sjá upplýsingar um þau framboð sem bárust einungis eitt framboð í og teljast þeir einstaklingar því sjálfkjörnir.
Samkvæmt 30. gr. laga SHA er kosið í embætti framkvæmdarstjórnar sem og önnur embætti og trúnaðarstörf á vegum félagsins rafrænt. Berist einungis eitt framboð í embætti, telst sá aðili sjálfkjörinn og þarf ekki að kjósa rafrænt í embættið. Þá kveða lögin á um það að berist ekki framboð í embætti, sé heimild til þess að opna fyrir framboð á aðalfundi og fer þá fram leynileg kosning á fundinum sjálfum þar sem fundargestir hafa atkvæðisrétt.
19.02.2020
Stefna Stúdentafélags Háskólans á Akureyri var samþykkt á 69. fundi stúdentaráðs SHA þann 14. febrúar 2020.
10.02.2020
Stúdentaráð Stúdentafélags Háskólans á Akureyri boðar til aðalfundar Stúdentafélags Háskólans á Akureyri þann 28. febrúar 2020 klukkan 13:15 í hátíðarsal Háskólans á Akureyri.