Hlutverk Menntasjóðs Námsmanna er að tryggja jöfn tækifæri til náms án tilliti til efnahags samkvæmt lögum sjóðsins. Sjóðurinn veitir lán til framhaldsnáms við skóla sem gera sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og gerðar eru til háskólanáms hérlendis. Sjóðnum er einnig heimilt að veita öðrum námsmönnum námslán sem stunda lánshæft aðfaranám eða starfsnám. Stjórn sjóðsins setur nánari reglur um hvaða aðfaranám og starfsnám er lánshæft hjá sjóðnum. Sjóðurinn sér einnig um veitingu jöfnunarstyrkja til nemenda á framhaldsskólastigi eftir þeim reglum sem styrkinn gildir. Menntasjóður námsmanna er fjármagnaður með endurgreiðslum námslána ásamt ríkisframlagi og lánsfé. Sjóðurinn leitast til þess að þjónusta viðskiptavini sína sem best, til að mynda með Mitt Lán ásamt spjallmenninu Línu og almennri upplýsingagjöf á heimasíðu sjóðsins. Einnig veita starfsmenn sjóðsins þjónustu í síma virka daga á milli kl. 10:00 til 15:00. Afgreiðslan sjóðsins er opin á milli 10:00 - 15:00 á virkum dögum. Sjóðurinn sér um veitingu jöfnunarstyrkja til nemenda á framhaldsskólastigi, reglugerð nr. 692/2003 með síðarí breytingum (760/2004, 829/2006, 532/2007, 922/2007) fjallar sérstaklega um þessa styrki.
Starfsárið 2017-2018 vann stúdentaráð SHA að því að efla tenginu stúdenta HA við stjórn MSN. Leiddi sú vinna af sér þjónustusamning við Stúdentaráð Háskóla Íslands (SHÍ) en þjónustusamningurinn felur það í sér að lánasjóðsfulltrúi SHÍ sem starfar á réttindaskrifstofu SHÍ þjónustar stúdenta HA auk þess sem lánasjóðsfulltrúi SHÍ fyrir hönd stúdenta HA innan stjórnar MSN. Þú getur leitað til lánasjóðsfulltrúa til þess að fá aðstoð við þín mál er snúa að MSN, nánari upplýsingar hér.