Tónleikaröðin Sérfræðingar að Sunnan! hefst fimmtudaginn 26. september næstkomandi með tónleikum hljómsveitarinnar kimono í Hofi. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 (Salur opnar 20:00) og sér eyfirska hljómsveitin Buxnaskjónar um upphitun.
Miðaverð er 2.000 kr en námsmenn fá 25% afslátt. Miðasala fer fram á vef Hofs, www.menningarhus.is
Tónleikar í tónleikaröðinni SAS! verða mánaðarlega fram að áramótum og tilgangurinn er að spyrða saman norðlensku og sunnlensku tónlistarfólki og búa til öflugan grundvöll að frekari samvinnu milli íslensks tónlistarfólks.
“Sérfræðingar að Sunnan” njóta stuðnings veitingastaðarins 1862, Hostelsins Akureyri Backpackers og léttölsins Thule.
Nánari upplýsingar:
Baldvin Esra, sérfræðingur, 696 8182, baldvinesra@gmail.com