Aðalfundur SHA 2025

Stúdentaráð Stúdentafélags Háskólans á Akureyri boðar til aðalfundar SHA þann 27. mars 2025 klukkan 17:00 í stofu M203 í Háskólanum á Akureyri og á Teams.

 
Dagskrá aðalfundar
1. Fundur settur.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla framkvæmdastjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
4. Skýrsla fjármálastjóra, ársreikningar bornir upp til samþykktar.
5. Samþykktabreytingar, sem fram hafa komið tillögur þar að lútandi.
6. Kosningar í framkvæmdastjórn SHA.
7. Kosningar í önnur embætti.
8. Önnur mál.
9. Fundi slitið.
 
Óskað er eftir framboðum í eftirfarandi:
 
Framkvæmdastjórn SHA:
Forseti Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Varaforseti Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Fjármálastjóri Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
 
Formenn fastanefnda:
Formaður Alþjóðanefndar.
Formaður Kynninganefndar.
Formaður Viðburðanefndar.
 
Gæðaráð:
Einn fulltrúi í Gæðaráð Háskólans á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.
 
Háskólaráð:
Einn fulltrúi í Háskólaráð Háskólans á Akureyri til tveggja ára og einn til vara.
 
Önnur embætti:
Skoðunarmaður reikninga Stúdentafélags Háskólans á Akureyri til eins árs.
Einn fulltrúi í stjórn Félagsstofnun stúdenta á Akureyri til eins árs og einn til vara.
Tvo fulltrúa í jafnréttisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og tvo til vara.
Einn fulltrúa í vísindaráð Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.
Tveir fulltrúar í umhverfisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og tveir til vara.
Sex fulltrúa á háskólafund Háskólans á Akureyri til eins árs og sex til vara.
 
Framboð til embætta og trúnaðarstarfa
Framboðum til embætta og trúnaðarstarfa innan félagsins skal skilað til kjörstjórnar á netfangið kjorstjorn@sha.is. Framboðsfrestur rennur út þremur sólarhringum fyrir aðalfund. Framboðsyfirlýsingar þurfa því að berast fyrir klukkan 17:00 þann 24. mars n.k. Í framboðsyfirlýsingu skal koma fram fullt nafn viðkomandi, í hvaða embætti viðkomandi býður sig fram í og hver staða viðkomandi er í námi við HA. Þá skal fylgja mynd af viðkomandi í póstinum.
 
Samþykktabreytingar:
Tillögum um samþykktabreytingar skal skila til framkvæmdastjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar á netfangið sha@sha.is.
 
Upplýsingar um embætti og trúnaðarstörf félagsins má nálgast á vefsíðu félagsins, eða með því að hafa samband við framkvæmdastjórn á skrifstofu félagsins eða í gegnum netfangið sha@sha.is.
 
This event will be host in Icelandic