Stúdentaráð Stúdentafélags Háskólans á Akureyri boðar til aðalfundar Stúdentafélags Háskólans á Akureyri þann 25. febrúar 2021 klukkan 17:00 á ZOOM. Hlekkur á fundinn er hér https://eu01web.zoom.us/j/68860743658.
Dagskrá aðalfundar
• Fundur settur.
• Kosning fundarstjóra og fundarritara.
• Skýrsla framkvæmdastjórnar um störf félagsins á liðnu ári.
• Skýrsla fjármálastjóra, ársreikningar bornir upp til samþykktar.
• Samþykktabreytingar.
• Kosningar í framkvæmdastjórn SHA.
• Kosningar í önnur embætti.
• Önnur mál.
• Fundi slitið.
Samkvæmt 31.gr. laga SHA er kosið í embætti framkvæmdastjórnar sem og önnur embætti og trúnaðarstörf á vegum félagsins rafrænt. Berist einungis eitt framboð í embætti, telst sá aðili sjálfkjörinn og þarf ekki að kjósa rafrænt í embættið. Þá kveða lögin á um það að berist ekki framboð í embætti, sé heimild til þess að opna fyrir framboð á aðalfundi og fer þá fram leynileg kosning á fundinum sjálfum þar sem fundargestir hafa atkvæðisrétt.
Óskað er eftir framboðum í eftirfarandi:
Framkvæmdastjórn SHA
Formaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri,Varaformaður Stúdentafélags Háskólans á Akureyri og Fjármálastjóri Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Formenn fastanefnda
Formaður Alþjóðanefndar, Formaður Kynninganefndar, Formaður Viðburðanefndar.
Fjarnemafulltrúi SHA
Háskólaráð Varafulltrúi til eins árs.
Gæðaráð Einn fulltrúi í Gæðaráð Háskólans á Akureyri til tveggja ára og tvo til vara.
Önnur embætti
Skoðunarmaður reikninga Stúdentafélags Háskólans á Akureyri.
Einn fulltrúi í stjórn Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri til tveggja ára og tveir til vara.
Tveir fulltrúar í jafnréttisráð Háskólans á Akureyri og tveir til vara.
Einn fulltrúi í siðanefnd Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.
Einn fulltrúi í vísindaráð Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.
Þrír fulltrúar í umhverfisráð Háskólans á Akureyri til eins árs og tvo til vara.
Sex fulltrúar á háskólafund Háskólans á Akureyri til eins árs og þrír til vara.
Einn fulltrúi í kannanateymi Háskólans á Akureyri til eins árs og einn til vara.
Samþykktabreytingar
Tillögum um samþykktabreytingar skal skila til framkvæmdastjórnar minnst tveimur sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar á netfangið sha@sha.is.
Framboð til embætta og trúnaðarstarfa
Framboðum til embætta og trúnaðarstarfa innan félagsins skal skilað til kjörstjórnar á netfangið kjorstjorn@sha.is. Framboðsfrestur rennur út þremur sólarhringum fyrir aðalfund. Framboðsyfirlýsingar þurfa því að berast fyrir klukkan 17:00 þann 22. febrúar n.k. í framboðsyfirlýsingu skal koma fram fullt nafn viðkomandi, í hvaða embætti viðkomandi býður sig fram í og hver staða viðkomandi er í námi við HA. Þá skal fylgja mynd af viðkomandi í póstinum.
Upplýsingar um embætti og trúnaðarstörf félagsins má nálgast á vefsíðu félagsins, eða með því að hafa samband við framkvæmdastjórn á skrifstofu félagsins eða í gegnum netfangið sha@sha.is.